mbl | sjónvarp

Hræðileg mistök hjá markverði Arsenal (myndskeið)

ÍÞRÓTTIR  | 9. mars | 22:37 
Enski markvörðurinn Aaron Ramsdale gerði sig sekan um hræðileg mistök í leik Arsenal og Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi.

Enski markvörðurinn Aaron Ramsdale gerði sig sekan um hræðileg mistök í leik Arsenal og Brentford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi.

Ramsdale hefur verið varamarkvörður Arsenal eftir að David Raya kom til félagsins en Raya mátti ekki spila í gær, þar sem hann er enn samningsbundinn Brentford og að láni hjá Arsenal.

Arsenal vann leikinn 2:1, en Yoane Wissa jafnaði í 1:1 eftir mistökin slæmu. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

Loading