Laxveiði hófst í Þjórsá í morgun fyrir landi Urriðafoss og komu fimm á land fram að hádegi.
Að sögn Hörpu Hlínar Þórðardóttur hjá Iceland Outfitters, sem hefur svæðið á leigu, þá voru skilyrði til veiða mjög erfið og áin var mjög lituð og vatnsmikil. Það var eiginmaður Hörpu, Stefán Sigurðsson, sem náði fyrsta laxinum á land þetta árið.
Til viðbótar misstu veiðimenn marga laxa þar sem erfitt var að hemja þá sökum vatnselgs.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |