Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiám landsins birtust í morgun á vef Landssambands veiðifélaga, en tölfræðin nær frá 9. til 15. ágúst. Eystri- og Ytri-Rangá eru farnar að draga vagninn hvað fjölda laxa varðar og Þverá/Kjarrá í Borgarfirði dottin niður í þriðja sætið.
Eystri-Rangá er komin í efsta sætið þar sem heildarveiðin er komin í 2.651 laxa og þar er mjög mikil veiði þessa dagana og veiddust 649 laxar í síðustu viku. Á sama tíma fyrir ári stóð heildarveiðin í 1.401 veiddum laxi.
Í öðru sæti er Ytri-Rangá með heildarveiði 2.288 laxa og gaf síðasta vika 396 laxa. Á sama tíma fyrir ári stóð heildarveiðin í 3.746 veidda laxa.
Þverá/Kjarrá í Borgarfirði er dottin í fjórða sætið þar sem veiðin er komin í 2.202 laxa en þar veiddust aðeins 91 lax í síðustu viku og veiði heldur farin að róast og áin farin að sýna merki um vatnsskort. Á sama tíma fyrir ári voru komnir þar á land 1.600 laxar.
Hér er listinn yfir 10 efstu árnar eins og staðan er þessa vikuna.
Nánar má kynna sér þessar tölur hér.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |