SAMBLAND af öfund og fyrirlitningu hefur ráðið afstöðu stjórnvalda í Abú Dhabí til stjórnvalda í Dúbaí, en ríkin eru saman í sjöríkjasambandinu Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta er eins og það hvernig gamlir kapítalistar líta oft á þá sem nýríkir eru, að mati hagfræðings við rannsóknarmiðstöð í efnahagsmálum í Dubaí.
Abú Dhabí kom Dúbaí til hjálpar nú í vikunni með 10 milljarða dollara láni, en allt stefndi í óefni í síðara ríkinu vegna mikillar skuldsetningar, sem stjórnvöld eiga erfitt með að standa undir vegna mikillar lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu. Uppgangurinn í Dúbaí hefur verið gríðarlegur. Góðærið var notað til að byggja mikið, svo sem hæstu byggingu heims, og standa fyrir miklum skrautsýningum á hinum ýmsu sviðum, eins og góðærinu myndi aldrei linna. gretar@mbl.is