Karl Karlsson fæddist í Reykjavík 30.11. 1961. Hann lést í Norgegi 22.11. 2009. Móðir Karls er Hergerður Zakaríasdóttir, f. 1936. Faðir hans var Karl Levy Jóhannesson, f. 1919, d. 2008. Karl var kvæntur Ernu Hilmarsdóttur og átti með henni tvö börn, Hafrúnu Öldu, f. 1983, og Adam Levy, f. 1985, en leiðir þeirra skildu. Karl var kominn af stórum systkinahópi, en þau voru 14 systkinin og eru nú 5 þeirra látin. Samfeðra, Kristofer (látinn), Sigríður, Kristín og Jóhannes. Af alsystkinum var Karl fimmti í röðinni, en þau eru, Hörður (látinn), Hörður (látinn), Jóhann, Hera, Hörður og óskírð stúlka (látin). Sammæðra eru, Annika, Perla og Rósa. Karl lætur eftir sig unnustu í Noregi, Helgu Grönseth, en hún á 3 uppkomin börn. Minningarathöfn fór fram í Kópavogskirkju fimmtudaginn 17. desember.

Vin sínum

skal maður vinur vera

og gjalda gjöf við gjöf.

Hlátur við hlátri

skyli höldar taka

en lausung við lygi.

/

Vin sínum

skal maður vinur vera,

þeim og þess vin.

En óvinar síns

skyli engi maður

vinar vinur vera.

(Úr Hávamálum.)

Börnum Karls og öðrum ættingjum vottum við okkar innilegustu samúð og hluttekningu.

Steinþór, Hildur og börn.

Elsku pabbi okkar.
Það eru engin orð sem lýsa því  nógu vel hversu mikið okkur þykir vænt um þig.
Allar góðu minningarnar eiga eftir að hlýja okkur í hjartanu á erfiðum tímum.
Við erum varla að trúa þessu og þetta er allt svo óraunverulegt.
Þú varst alltaf svo hress og skemmtilegur og oftar en ekki brosandi út að eyrum.
Það var alltaf gaman að fá þig í heimsókn frá Noregi, þú hafðir alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja.
Elsku besti pabbi, við söknum þín svo mikið.
Þökkum samfylgdina í lífinu.

Þín börn,

Hafrún og Adam.

Elsku besti frændi þú varst svo góður og við söknuðum þín þegar þú fóst út til Noregs og ég saknaði þín svo mikið og það var svo gaman þegar þú varst hjá mér, ofsa gaman

Ég sakna þín.

Bæ, bæ besti frændi, bæ, bæ.

Frá Elínu Rós 8 ára.