Fyrir rúmu ári tók markaðsstofan Icelandic lamb til við að kynna lambakjöt og aðrar íslenskar sauðfjárafurðir fyrir erlendum ferðamönnum. Þetta er í fyrsta sinn sem það hefur verið gert skipulega með þessum hætti. Komið hefur verið á samstarfi við um 150 veitingastaði, sérverslanir, framleiðendur og hönnuði. Rekin er öflug markaðsherferð á netinu þar sem myndböndum og öðru efni er dreift á samfélagsmiðlum til að kynna íslenska lambið fyrir þeim gestum sem hingað koma. Öll markaðssetningin er undir sérstöku merki Icelandic lamb.
27% erlendra ferðamanna þekkja merkið
Samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Icelandic lamb í nóvember og desember þekkja 27% erlendra ferðamanna merkið. Það er miklu betri árangur á einu ári en nokkur þorði að vona. Af þeim sögðust líka 73% hafa mjög eða nokkuð jákvætt viðhorf til merkisins. Neikvætt viðhorf mældist ekki. Þessar niðurstöður komu ánægjulega á óvart og eru miklu betri en búist var við. Lambakjöt er þjóðarréttur okkar Íslendinga að mati 74% svarenda í könnun sem gerð var fyrir kokkalandsliðið árið 2016 og viðhorf okkar til bænda er almennt jákvætt.
Rúmur helmingur borðar lambakjöt
Þetta jákvæða viðhorf okkar sjálfra virðist skila sér ágætlega til þeirra sem sækja landið heim. Í fyrrgreindri könnun Gallup fyrir Icelandic lamb rétt fyrir áramótin var spurt að því hvort erlendu ferðamennirnir hefðu borðað lambakjöt á Íslandi. Í ljós kom að 50% borða lambakjöt á veitingastöðum en 13% borða lambakjöt sem keypt er í búð. Skörun er á milli þessara hópa en samtals borða 54% þeirra einhvern tíma lambakjöt í ferðinni. Sú niðurstaða er líka ánægjuleg og óvænt.
Breiðfylking á bak við lambið
Samfélagsmiðlar og snjalltæki skipa sífellt stærri sess í lífi okkar flestra. Með þeirra hjálp getum við ennþá betur komið á framfæri réttum skilaboðum um hreinleika okkar einstæðu náttúru og gæði þeirra frábæru matvæla sem hún færir okkur. Nýting þeirra tækifæra sem ný tækni hefur skapað okkur er ein af undirstöðum þess góða árangurs sem markaðsstofan Icelandic lamb hefur náð. En hann er líka afrakstur breiðfylkingar Íslendinga á bak við lambið, ómældrar vinnu bænda og þeirra starfsfólks, leiðsögumanna, kokka, þjóna og margra fleiri sem hafa hjálpast að við segja söguna um íslenska lambið. Takk, Íslendingar!Höfundur er framkvæmdastjóri Icelandic lamb. svavar@bondi.is