[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
UNNIÐ er í kapp við tímann við uppgröft rómversku borgarinnar Zeugma í Tyrklandi því yfirborð árinnar Efrat hækkar um hálfan metra á hverjum degi vegna stíflugerðar.

UNNIÐ er í kapp við tímann við uppgröft rómversku borgarinnar Zeugma í Tyrklandi því yfirborð árinnar Efrat hækkar um hálfan metra á hverjum degi vegna stíflugerðar. Mehmet Onal, sem stjórnar uppgreftrinum, hefur farið þess á leit við yfirvöld að því verði frestað um nokkra mánuði að fylla stíflulónið af vatni meðan lokið er við uppgröftin. Skiptar skoðanir eru hins vegar í Tyrklandi um mikilvægi Zeugma og kostnaðinn sem frestun fylgi.

Fjórtán merkar mósaíkmyndir

"Mósaíkmyndirnar í Zeugma standast samanburð við þær sem sjá má í stærstu söfnum heims," sagði Onal. Þegar hafa fundist 14 mósaíkmyndir, 60.000 leirinnsigli, vandaðar rómverskar súlur, freskur, bronsstytta af herguðinum Mars og 3.700 gull- og silfurmyntir. Meðal mósaíkverkanna er tjörn skreytt myndum af sjávarguðinum Poseidon, Ókeanosi, litríkum fiskum í tugatali, álum og rækjum.

"Þetta er bara dropi í hafið," sagði Yusuf Yavas, einn fornleifafræðinganna. "Enn höfum við bara grafið upp tvö setur og það sem finnst þar er ótrúlegt."

Kostnaðarsamar framkvæmdir

Zeugma, eða a.m.k. hluti borgarinnar, mun þó lenda undir vatnsborði Efrat innan tveggja vikna samþykki tyrknesk yfirvöld ekki frestun frekari stífluframkvæmda. Nú þegar er vatnsborðið einungis um 27 m frá uppgraftarstaðnum.

Yfirvöld í Tyrklandi eru hins vegar ófús að fresta því að taka stífluna í notkun og segja kostnaðinn sem því nemur vera um 30 milljón dollara, eða 2,3 milljarða kr. á mánuði. "Ég tel ekki að þjóðin hafi efni á þeim munaði að fresta þessu," sagði Yuksel Onaran, framkvæmdastjóri Birecik A.S. sem sér um stífluframkvæmdina.

Þrýst er nú í auknum mæli á Istemihan Talay, menningarmálaráðherra landsins. Hann hefur lofað að fjarlægja akra með pistasíutrjám úr efri hlíðum Zeugma með fjárgjöfum frá Birecik A.S. og breyta þeim hluta borgarinnar sem bjarga má í útilistasafn. Þriðjungur Zeugma mun með þessu móti eigi að síður hverfa undir vatn og þar með fjöldi fornminja.

Ekki eru hins vegar allir á því að fornminjar Zeugma séu mikilvægur hluti tyrkneskrar menningar. Toni Cross við bandarísku rannsóknarmiðstöðina í Tyrklandi segir m.a. mörg önnur svæði áhugaverðari og lærdómsríkari. Forngríska, rómverska eða býsantínska fornmuni má, vegna sögu landsins, finna í flestum héruðum Tyrklands.

Zeugma þýðir brú á grísku og var borgin útvarðstöð rómverska hersins á tímum heimsveldisins. Talið er að borgin hafi á hápunkti sínum verið stærri en bæði Pompeii og London á tímum Rómverja.

Belkis. AP.