Sigmundur Davíð vill kjötið hrátt

Sigmundur virðist vera ánægður með íslenskt kjöt og sér enga …
Sigmundur virðist vera ánægður með íslenskt kjöt og sér enga þörf fyrir eldamennsku, Skjáskot af facebook

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður birti mynd af kexkökum og hökkuðu kjöti fyrir skemmstu á facebook-síðu sinni. Við myndina skrifaði hann „Einn af mörgum kostum við íslenskt kjöt er að maður þarf ekki að elda það frekar en maður vill.“ Myndin hefur vakið mikla athygli og fólk annaðhvort mjög ánægt með framtakið eða lýsir furðu sinni á því. Flestir vilja þó fá enn frekari upplýsingar um kjötið en við fyrstu sýn virðist þetta vera rauðkál.

Sigmundur er annálaður áhugamaður um íslenska matvöru og lýsir því gjarnan yfir að íslenskt hráefni sé best. Hvaðan kexkökurnar koma er ekki vitað.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur áhugaverðan matarsmekk.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur áhugaverðan matarsmekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert