Arnar Gauti Markússon - Upplestrarkeppni

Arnar Gauti Markússon - Upplestrarkeppni

Kaupa Í körfu

Framsögumenn framtíðarinnar Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar, þar sem nemendur í sjöunda bekk grunnskóla reyna með sér, stendur nú sem hæst vítt og breitt um landið. Orri Páll Ormarsson fylgdist með einni slíkri hátíð, lokahátíð Breiðholts og Árbæjar, í Seljakirkju. ANDDYRIÐ er uppfullt af ungmennum. Öll bera þau bækur og blöð undir hendi og hlýða á ráðleggingar og hvatningarorð foreldra, vina og kennara. Þau koma vel nestuð til leiks en aldrei eru góð ráð of oft þegin. Þá er komið að því - keppendur ganga í salinn. Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Seljakirkju er hafin. Hér leiða saman hesta sína tveir hlutskörpustu nemendurnir úr sjöunda bekk í sjö skólum í Árbæ og Breiðholti, fjórtán framúrskarandi framsögumenn. Fólk framtíðarinnar. Einbeitingin skín úr hverju andliti. MYNDATEXTI: Arnar Gauti Markússon sem fór með sigur af hólmi í Stóru upplestrarkeppninni í Seljakirkju.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar