Fylkir - ÍBV 2:3

Fylkir - ÍBV 2:3

Kaupa Í körfu

NÝLIÐAR Fylkis töpuðu sínum fyrsta leik á leiktíðinni þegar þeir lágu á heimavelli sínum fyrir ÍBV, 2:3, í fyrrakvöld. Þetta var um leið fyrsti útisigur Eyjamanna í sumar og með honum hleyptu þeir aukinni spennu á topp deildarinnar en þrátt fyrir ósigurinn halda Fylkismenn efsta sætinu. MYNDATEXTI: Tómas Ingi Tómasson kom nokkuð við sögu í leiknum gegn Fylki. Hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir 35 sekúndna leik og var svo rekinn af velli í síðari hálfleik. Hér leikur Tómas á Gunnar Þór varnarmann Fylkis og Sverrir Sverrisson fylgist með gangi mála

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar