Hrafnista - Ný álma opnuð

Hrafnista - Ný álma opnuð

Kaupa Í körfu

Ný hjúkrunarálma við Hrafnistu vígð JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra vígði í gær nýja hjúkrunarálmu sem er við eldri hluta Hrafnistu í Reykjavík. Mun álman vista 60 heimilismenn. Álmunni er ætlað að létta á þeim vanda sem blasir við í hjúkrunarmálum aldraðra, en talið er að um 260 manns séu á biðlista eftir hjúkrunarrými. MYNDATEXTI: Hjúkrunarálman er tæplega 4.000 fermetrar. Hún er á tveimur hæðum, sem hvor um sig vistar 30 manns, auk kjallara og tengigangs við Hrafnistu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar