Silvía Nótt

Silvía Nótt

Kaupa Í körfu

Hann hefur varla farið fram hjá nokkru mannsbarni, sirkusinn sem nú er staddur í bænum. Enda hafa forsíður og baksíður blaðanna, stór hluti fréttatímanna og viðtalsþáttanna verið undirlagðir af kynningarefni um ljósfimleikana og trúðslætin sem, að sögn elstu manna, slá öllum fyrri alþýðuskemmtunum við. Og það er engin furða því að sirkusinn býður upp á svo mögnuð atriði að sumir neita jafnvel að kalla þetta sirkus, segjast frekar vera á leiðinni í leikhúsið, þarna er jú svið, fjöldi leikara og síðast en ekki síst, söguþráður. Ég er að sjálfsögðu að tala um Silvíu Nótt, (fyrirsögnin og myndin kom ykkur á sporið MYNDATEXTI Herrar mínir og frúr, leyfið mér að kynna; hina ótrúlegu, óborganlegu, og ómótstæðilegu, Silvíu Nótt!"

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar