Eurovision 2007

Eurovision 2007

Kaupa Í körfu

ÍSLENSKU Evróvisjón-fararnir héldu sína fyrstu æfingu á Hartwall-leikvanginum í Helsinki í gærmorgun. Hópurinn kom til borgarinnar á föstudaginn og fékk því lítinn tíma til hvíldar. Á æfingunni söng Eiríkur lagið "Valentine Lost" sex sinnum og að sögn Halldóru Þórsdóttur, blaðamanns Morgunblaðsins í Helsinki, gekk æfingin mjög vel. Hún segir að mikil áhersla hafi verið á að prófa ljósin á þessari fyrstu æfingu en Eiríkur hafi hins vegar verið mjög öruggur á sviðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar