Gummi Jóns - Útgáfutónleikar Fuður - Nasa

Gummi Jóns - Útgáfutónleikar Fuður - Nasa

Kaupa Í körfu

EKKI einu sinni Sprengjuhöllin hefði getað sýnt af sér jafn mikinn popp-þokka og þau Gummi Jóns, Hara-systur og Einar Ágúst gerðu á fimmtudagskvöldið á NASA. Þar héldu þau sameiginlega útgáfutónleika sem tókust með afbrigðum vel. Gummi Jóns flutti lög af þriðju plötunni í hinum alræmda þríleik Japli, Jamli og Fuðri. Hara-systur sýndu hvers vegna annað sætið kom í þeirra hlut í X-Factor og Einar Ágúst sannaði það svo um verður ekki villst að hann er fantagóður flytjandi. Ef fram heldur sem horfir er „ekkert víst að það klikki. MYNDATEXTI Gummi Flutti lög af þriðju plötu alræmds þríleiks; Jamls, Japls og Fuðurs. Ekki skortir innlifunina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar