Aðalheiður Valgeirsdóttir - Morgunroði

Aðalheiður Valgeirsdóttir - Morgunroði

Kaupa Í körfu

Tímaljós heitir sýning Aðalheiðar Valgeirsdóttur sem nú stendur yfir í Ásmundarsal Listasafns ASÍ. Alls 8 olíumálverk, 110 x 170 cm að stærð, hanga sem myndröð í salnum. Öll eru verkin unnin eftir ólíkum náttúruhugrifum frá hausti til vors út frá birtu og formi hvers tímabils. Litir eru gegnsæir og liggja hver ofan á öðrum en haldast flatir. Á yfirborðið teiknar listakonan svo ýmist línur eða punkta sem gefa myndunum ímyndað rými. MYNDATEXTI Tímaljós Öll verkin eru unnin eftir ólíkum náttúruhugrifum frá hausti til vors út frá birtu og formi hvers tímabils.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar