Ísland - Serbía

Ísland - Serbía

Kaupa Í körfu

ERFITT er að ímynda sér kraftmeiri vítamínsprautu fyrir leikmannahóp íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu sem brátt heldur í úrslitakeppni EM í Finnlandi en frábæran fimm marka sigur frammi fyrir þúsundum íslenskra áhorfenda í blíðviðri á Laugardalsvelli. Þetta var áætlun Sigurður Ragnars Eyjólfssonar þjálfara, sem sóttist sjálfur eftir að fá þennan fyrsta leik í undankeppni HM á þessum tíma, og hún heppnaðist fullkomlega. MYNDATEXTI Á kostum Margrét Lára Viðarsdóttir lék serbnesku vörnina grátt en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í leiknum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar