Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins - Skógarhlíð

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins - Skógarhlíð

Kaupa Í körfu

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á sjötta tímanum í gærmorgun vegna hugsanlegs elds í lýsisverksmiðjunni á Granda. Við komu slökkviliðs var ljóst að ekki var um eld að ræða. „Þetta reyndist ekki vera neitt að ráði. Það var hitablásari sem myndaði einhvern hita og þá fór brunavarnakerfið í gang,“ sagði varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is. Alls voru 64 útköll í fyrrakvöld og í fyrrinótt sem þykir gríðarmikið. „64 útköll eru mjög, mjög mikið. Það eru kannski svona 30 venjulega. Þetta var helmingi meira en vanalega,“ sagði varðstjórinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar