Samfélagsmiðlastjarna kynnir stærsta verkefni lífs síns

MrBeast er þekktur fyrir að gefa af sér.
MrBeast er þekktur fyrir að gefa af sér. Skjáskot/Youtube

Youtube-stjarnan MrBeast gaf út tilkynningu þess efnið að hann væri að vinna að verkefni sem hann titlar það stærsta sem hann hefur unnið að. MrBeast er einn frægasta Youtube-stjarna heims enda hefur hann nánast slegið öll met á myndbandamiðlinum.

Gefur af sér

Hann er þekktur fyrir að gefa mikið af sér og leggur mikið í sölurnar þegar hann býr til myndskeið sín. Til dæmis má nefna þegar hann setti upp áskorun þar sem síðasti til þess að sleppa fingrinum af einkaþotu fengi þotuna að gjöf. MrBeast heldur þó einnig úti skyndibitakeðju og framleiðir nammi undir MrBeast nafninu. 

Þessi myndskeið hans hafa skotið honum á stjörnuhimininn en hann er 149 milljónir áskrifenda á Youtube sem er það mesta sem ein manneskja hefur áorkað. 

MrBeast birti nokkrar myndir af sér að skipuleggja verkefnið sem hann hefur þó ekki greint frá og vill halda leyndu í bili, hann þakkaði aðdáendum sínum fyrir að fylgjast með sér og hafa trúa á sér meðan hann klárar að undirbúa þetta leynda verkefni. Hann segir þetta muni koma öllum á óvart. 

Það verður gaman að sjá hvað hann tekur sér næst fyrir hendur en það má búast við því að það muni ekki vera neitt smáræði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert