Þriðja barnið á við það þrjú þúsundasta

Blake Lively á nú þrjár dætur.
Blake Lively á nú þrjár dætur. AFP

Leikkonan Blake Lively segir að það að hafa eignast þriðja barnið hafi verið eins og að fara úr tveimur börnum yfir í þrjú þúsund börn. 

Lively var mætt í viðtal í fyrsta skipti í marga mánuði til að kynna nýja kvikmynd sína The Rythim Section. Hún og eiginmaður hennar Ryan Reynolds eignuðust þriðju dótturina síðastliðið sumar. Fyrir eiga þau dæturnar James og Inez, fimm og þriggja ára. 

„Á einum tímapunkti áttum við þrjár stelpur undir fjögurra ára aldri. Það er eins og að fara úr tveimur upp í 3.000. Við eigum svo mörg börn að þau eru fleiri en við. Það er mikið. Fólk segir að fara úr tveimur í þrjú sé svipað létt, þetta fólk á ekki þrjú börn. Það er klikkað,“ sagði Lively í viðtali við Good Morning America.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert