Þetta eru bestu ferðirnar fyrir þau sem vilja flýja rigninguna

Það heillar eflaust marga að komast úr rigningarsuddanum í sólina.
Það heillar eflaust marga að komast úr rigningarsuddanum í sólina. Samsett mynd

Býrðu á suðvesturhorni landsins og er rigningin alveg að fara með þig? Langar þig að kíkja í sólina til að fá smá D-vítamín ekki seinna en í gær? Er fjölskyldan hrædd um að sólarvörnin sem var keypt í vor muni renna út áður en hægt verður að nota hana? Örvæntið ekki, það er nóg í boði af spennandi sólarlandaferðum þar sem brottför er á næstu dögum.

Nú þegar skólar eru komnir í sumarfrí og stutt í að leikskólarnir geri slíkt hið sama, er um að gera að fara með fjölskylduna í smá sól og skemmtun. Hér eru nokkur dæmi um ferðir sem íslenskar ferðaskrifstofur bjóða upp á í nánustu framtíð.

Krít - 3. júlí til 13. júlí

Heimsferðir bjóða upp á ýmsa möguleika á Krít. Meðal annars er hægt að stökkva til Krítar þann 3. júlí næstkomandi, sem felst í því að ekki er tilkynnt um gististað fyrr en rétt fyrir brottför. Hægt að fá 10 daga ferð fyrir 2 fullorðna og 1 barn fyrir minnst 99.900 krónur á mann. Hér er um að ræða tveggja stjörnu gistingu en einnig er í boði stökktilboð sem inniheldur fjögurra stjörnu gistingu með allt innifalið. Hægt er að fá ferð í þeim flokki frá 179.900 á mann miðað við 2 fullorðna og eitt barn.

Tenerife - 1. júlí til 8. júlí

Ef þú getur ekki beðið fram í næstu viku þá bjóða Plúsferðir upp á ferð til Tenerife um helgina. Ef miðað er við tvo fullorðna og tvö börn er hægt að fá vikuferð frá 103.656 krónur á mann með gistingu á þriggja stjörnu hóteli í Los Christianos. Ef um fjögurra stjörnu hótel er að ræða er hægt að fá ferð fyrir 178.583 krónur á mann við ströndina á Costa Adeje.

Almeria - 6. júlí til 17. júlí

Er stórfjölskyldan ekki alveg tilbúin til þess að stökkva af stað strax um helgina? Þá getið þið beðið með brottför til 6. júlí og komist til Almeria með Sumarferðum fyrir 102.506 krónur á mann miðað við tvo fullorðna og þrjú börn. Hér er um að ræða þriggja stjörnu hótel um 500 metra frá ströndinni. 

Úrval Útsýn býður einnig upp á ferð fyrir stórfjölskylduna til Almeria á sömu dagsetningum. Hjá þeim er hægt að fá ferð miðað við þrjá fullorðna og þrjú börn fyrir 94.500 á mann. 

Benidorm/Albir - 4. júlí til 11. júlí

Plúsferðir bjóða upp á gott úrval ferða til Benidorm og Albir með flugi til Alicante. Hægt er að fá ferð miðað við tvo fullorðna og eitt barn frá 117.281 krónur á mann á þriggja stjörnu hóteli á Benidorm og fyrir 128.716 krónur á mann á fjögurra stjörnu hóteli á Albir. Á báðum hótelum er hægt að velja gistingu með allt frá hálfu fæði upp í allt innifalið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert