Hér er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar

Besta veðrið er á Suðurlandinu.
Besta veðrið er á Suðurlandinu. Samsett mynd

Íslend­ing­ar eru þekkt­ir fyr­ir að elta veðrið í sum­ar­frí­inu, þá sér­stak­lega þegar kem­ur að tjaldúti­leg­unni. Þar sem gönguleið að gosstöðvunum verður lokuð að minnsta kosti fram á laugardag er tilvalið að skella sér í útilegu um helgina. Það má þó ekki búast við jafn góðu veðri og var síðustu helgi þótt sólin muni láta sjá sig að einhverju leyti.

Sam­kvæmt tjald­vef Bliku verður besta veðrið hér.

Tjaldsvæðið á Hvolsvelli

Á Hvolsvelli er von á nokkuð góðu sumarveðri yfir helgina. Búist er við 15 gráðu hita á föstudeginum en 14 gráðum á laugardeginum. Hins vegar er spáð allt að 17 gráðum á sunnudeginum. Búist er við að hálfskýjað verði um helgina og eru engir rigningardropar í kortunum.

Tjaldsvæðið á Hvolsvelli er á hægri hönd þegar keyrt er inn á Hvolsvöll úr vestri. Svæðið er gamalgróið og afgirt með öspum, auk þess sem hver flöt er afstúkuð með trjám. Á svæðinu eru þrjú aðstöðuhús þar sem meðal annars má finna sturtu-, uppvöskunar- og eldunaraðstöðu. Aðgengi er í kalt og heitt vatn, rafmagn, gjaldskyldar sturtur og eru hundar leyfðir á svæðinu.

Tjaldsvæðið á Hvolsvelli.
Tjaldsvæðið á Hvolsvelli. Ljósmynd/Tjalda.is

Tjaldsvæðið við Gaddstaðaflatir

Við Gaddstaðaflatir við Hellu er von á nokkuð góðu sum­ar­veðri yfir helg­ina. Búist er við 15 gráðu hita á föstudeginum en aðeins kaldara verður á laugardeginum, eða 14 gráður. Hins vegar er spáð allt að 17 gráðum á sunnudeginum. Búist er við að hálfskýjað verði alla helgina og ekki vottur af rigningu í kortunum.

Tjaldsvæðið við Gaddstaðaflatir er rúmgott og með nýju salernishúsi. Þar er einnig gott aðstöðuhús þar sem er eldunaraðstaða. Tjaldsvæðið er fjarri skarkala Hellu en samt er mjög stutt í alla þjónustu bæjarins. Aðgengi er að köldu og heitu vatni, rafmagni og eru hundar leyfðir á svæðinu. Ekki er sturtuaðstaða en stutt er í sundlaugina á Hellu.

Séð yfir Hellu.
Séð yfir Hellu. Ljósmynd/South.is

Tjaldsvæðið Hraunborgum

Búist er við 14 gráðu hita á föstudeginum en aðeins kaldara verður á laugardeginum, eða 13 gráður. Hins vegar er spáð allt að 16 gráðum á sunnudeginum. Búist er við að hálfskýjað verði alla helgina og ekki vottur af rigningu í kortunum.

Tjaldsvæðið í Hraunborgum er skjólgott og þar er góð aðstaða fyrir barnafjölskyldur. Aðgengi er að köldu og heitu vatni, rafmagni og eru hundar leyfðir á svæðinu. Sundlaug er rétt hjá svæðinu svo þar er hægt að fara í sturtu. 25 ára aldurstakmark er á tjaldsvæðinu, nema í fylgd með fullorðnum.

Séð yfir Hraunborgir.
Séð yfir Hraunborgir. Ljósmynd/Facebook

Tjaldsvæðið á Laugarvatni

Búist er við 14 gráðu hita bæði föstudag og laugardag. Hins vegar er spáð allt að 16 gráðum á sunnudeginum. Búist er við að hálfskýjað verði alla helgina, nema á sunnudeginum er von á heiðskírum himni, og ekki vottur af rigningu í kortunum.

Tjaldsvæðið á Laugarvatni er skjólsælt og rúmgott. Gott leiksvæði er fyrir börn og einnig er þar fótboltavöllur. Aðgengi er að köldu og heitu vatni, rafmagni, gjaldfrjálsri sturtu og eru hundar leyfðir á svæðinu. Aldurstakmark er 20 ár og er mikið lagt upp úr því að gestir geti sofið rótt á næturnar.

Tjaldsvæðið á Laugarvatni.
Tjaldsvæðið á Laugarvatni. Ljósmynd/Blika.is

Uppfært klukkan 11:46: Tjaldsvæðið í Vatnsholti er ekki opið nema fyrir bókaða hópa í tengslum við hótelið og hefur því verið tekið út af þessum lista. Beðist er afsökunar á mistökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert