Annie Mist á von á dóttur

Annie Mist Þórisdóttir og Frederik Aegidius eiga von á dóttur.
Annie Mist Þórisdóttir og Frederik Aegidius eiga von á dóttur. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir

Crossfit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir greindi frá því í viðtali að hún og kærasti hennar Frederik Aeg­idius eiga von á lítilli stúlku. 

Annie Mist var stödd á crossfit-mótinu Wodapalooza í Miami í lok febrúar en hún kom að skipulagningu mótsins. Hún er nú gengin fjóra mánuði á leið og hefur því tekið sér pásu frá keppni. Hún gaf nýlega frá sér sæti sitt á heimsleikunum, en hún hafði tryggt sér sæti á mótinu í gegnum opna hluta keppninnar. 

Í viðtalinu sagðist Annie vilja sýna og sanna að konur geti átt börn og haldið áfram að æfa og keppa í crossfit. Hún segist vera tilbúin til þess að deila upplifun sinni af meðgöngunni með hverjum sem vill hlusta. Hún stefnir á að keppa aftur í crossfit eftir að dóttir hennar kemur í heiminn.

Annie hefur æft mikið á meðgöngunni en segir að heilsa dóttur hennar sé númer eitt, tvö og þrjú. 

Nafnið „Dóttir“ hefur vakið mikla athygli í crossfit-heiminum enda eru margar íslenskar konur í fremstu röð í greininni og er „dóttir“ í eftirnöfnum þeirra allra. Annie kom meðal annars að því að gera æfinguna „Dóttir“ sem var kynnt á Reykjavík Crossfit Championship í fyrra.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert