Langar að eignast börn með nýju kærustunni

Ben Affleck er í sambandi með Önu De Armas.
Ben Affleck er í sambandi með Önu De Armas. ROBYN BECK

Leikarinn Ben Affleck elskar börn og samkvæmt sögusögnum myndi hann elska að eignast börn með nýju kærustunni sinni, Önu De Armas.

Affleck og De Armas hafa sést mikið saman á síðustu vikum en þau fóru meðal annars saman til heimalands hennar Kúbu og til Kosta Ríka í síðasta mánuði. Þau kynntust við tökur á kvikmynd sem þau leika bæði í. 

„Ben elskar börn og elskar að vera pabbi. Hann myndi elska að eignast börn með henni einn daginn,“ er haft eftir heimildarmanni Us Weekly

Affleck á þrjú börn fyrir, Violet 14 ára, Seraphinu 11 ára og Samuel 8 ára, með fyrri eiginkonu sinni Jennifer Garner. Affleck og Garner eru góðir vinir í dag og hefur hún meðal annars stutt hann í gegnum meðferðir. 

„Jen er alveg komin yfir Ben. Hún lítur á hann sem vin, finnst hann vera góður faðir og ber virðingu fyrir honum. Hún er hamingjusöm með líf sitt og glöð að hann skuli vera búinn að finna ástina á ný,“ segir heimildarmaður Us Weekly.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert