Er öðruvísi mamma með rándýran smekk

Cardi B og vagnin í Dior frá toppi til táar.
Cardi B og vagnin í Dior frá toppi til táar. Skjáskot/Instagram

Svo virðist sem tónlistarkonunni Cardi B finnist fátt skemmtilegra, eða meira töff, en að klæða sig í merkjavöru frá toppi til táar. Nýverið birti hún mynd af sér í fötum frá Christian Dior frá toppi til táar en þá hafði hún einnig klætt barnavagninn í stíl. 

Cardi B og eiginmaður hennar Offset eignuðust sitt annað barn á síðasta ári. 

Áklæðið á vagninum er frá Dior og í stíl við pils, lífstykki og kápu tónlistarkonunnar. Hún var einnig með skiptitösku frá merkinu. Vagnin er frá Bugaboo en hún hefur lagt mikið upp úr því að skreyta vagninn svo hann passi við hana hverju sinni. 

View this post on Instagram

A post shared by Cardi B (@iamcardib)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert