Eignuðust þríbura á skírdag

Rannveig Hildur ásamt krílunum sínum.
Rannveig Hildur ásamt krílunum sínum. Skjáskot/Instagram

Rannveig Hildur Guðmundsdóttir og Hallgrímur A. Ingvarsson eignuðust þríbura á skírdag. Fyrir á parið tvö börn.

„Við Hallgrímur getum ekki hætt að brosa og svífum um á bleiku skýji, allt gekk eins og í sögu. Þau liggja núna þrjú saman á vökudeild og hafa það huggulegt í vöggu og þurfa engan auka stuðning. Alveg ótrúlegt hvað þau eru flott og dugleg. Fullkomin viðbót í fjölskylduna okkar,“ skrifar Rannveig á Instagram.

Rannveig hefur einnig deilt fallegu myndbandi af fyrsta sólarhringnum með þríburunum á Instagram.

Barna­vef­ur mbl.is ósk­ar Rannveigu og Hallgrími innilega til ham­ingju með þríburana!

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert