Svava Kristín á von á barni

Svava Kristín Grétarsdóttir á von á barni.
Svava Kristín Grétarsdóttir á von á barni. Ljósmynd/Facebook

Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttamaður á Vísi og Stöð 2 Sport, á von á barni. Hún greindi frá því á Facebook-síðu sinni. 

Svava Kristín er einhleyp og segir frá því að hún hafi notað tæknina til þess að láta drauminn um móðurhlutverkið rætast. 

„Ég stefni að því að hefja nýtt ár á því að fjölga Eyjamönnum. Við mamma skáluðum í gær, mamma skálaði fyrir því að fá ósk sína uppfyllta, að ég verði edrú í einhvern tíma núna. Loksins fæ ég að prófa þetta eftirsótta hlutverk að verða mamma. Ég stend ein að þessu með hjálp nútíma tækni svo það þýðir ekkert að reyna að rifja það upp hvenær þið sáuð mig i skemmtistaða sleik siðast,“ segir Svava Kristín á Facebook-síðu sinni. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert