Prúðuleikararnir flytja Hatrið mun sigra

Er Dýri genginn til liðs við Hatara?
Er Dýri genginn til liðs við Hatara? Skjákot/YouTube

Aðdáendahópur Hatara spannar vítt svið, allt frá leikskólabörnum til eldhressra eldri borgara, en nú hafa óvæntir aðdáendur bæst í hópinn, sjálfir Prúðuleikararnir. 

Í myndskeiði sem YouTube-notandinn Mark Marcia Jenkins hefur klippt til af einstakri snilld má sjá Dýra (e. Animal) og Svínku (e. Miss Piggy) bregða sér í hlutverk Matthíasar Tryggva Haraldssonar og Klemens Hannigan. Myndskeiðið má sjá hér að neðan. 

Ætli Prúðuleikararnir gætu náð lengra en liðsmenn Hatara á sviðinu í Tel Aviv í maí? Við munum líklega aldrei komast að því en það skýrist eftir 34 daga hvort Ísland komist í fyrsta skipti áfram upp úr undankeppninni síðan 2014, þegar liðsmenn Hatara stíga á svið á fyrra undankvöldi Eurovision. 

Liðsmenn Hatara stíga á svið í Tel Aviv eftir 34 …
Liðsmenn Hatara stíga á svið í Tel Aviv eftir 34 daga. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg