Strákabandið IceGuys kom óvænt fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær og vakti kátínu.
Strákabandið er skipað ólíkum hópi manna en þeir heita Jón Jónsson, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Aron Can og Rúrik Gíslason. Þetta strákaband var skipað í vor.
Strákabandið var ekki á dagskrá Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum. Einn úr hljómsveitinni, Herra Hnetusmjör, var hin svegar á dagskrá og laumaði hann vinum sínum í svið. Á einum stað voru ljósin dempuð og eftir smá stund stigu IceGuys á svið.
Gestir Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum kunnu svo sannarlega að meta þetta eins og sést á myndbandinu.