Samherji til sérstaks saksóknara

Húsleit hjá Samherja | 17. apríl 2013

Samherji til sérstaks saksóknara

Seðlabankinn fékk heimild til húsleitar hjá Samherja, en húsleitirnar fóru fram 27. mars 2012. Í maí sama ár fór Samherji fram á það að húsleitin og haldlagning gagna yrðu dæmdar ólögmætar. Um leið krafðist Samherji þess að Seðlabankinn hætti rannsókninni. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði þessum kröfum og Hæstiréttur sömuleiðis.

Samherji til sérstaks saksóknara

Húsleit hjá Samherja | 17. apríl 2013

Húsleit í höfuðstöðvum Samherja.
Húsleit í höfuðstöðvum Samherja. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Seðlabankinn fékk heimild til húsleitar hjá Samherja, en húsleitirnar fóru fram 27. mars 2012. Í maí sama ár fór Samherji fram á það að húsleitin og haldlagning gagna yrðu dæmdar ólögmætar. Um leið krafðist Samherji þess að Seðlabankinn hætti rannsókninni. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði þessum kröfum og Hæstiréttur sömuleiðis.

Seðlabanki Íslands hefur lokið rannsókn sinni á meintum brotum Samherja á gjaldeyrislögum og sent málið til meðferðar hjá sérstökum saksóknara. Stjórnendur Samherja hafa gagnrýnt húsleitina harðlega sem og þann drátt sem orðið hefur á rannsókninni undanfarið rúmt ár.
Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabanka Íslands,

vildi ekki tjá sig um málið en óskað var eftir viðtali við Má Guðmundsson seðlabankastjóra. „Seðlabanki Íslands getur ekki tjáð sig um gang þeirra mála sem til rannsóknar kunna að vera,“ var svarið.

Seðlabankinn fékk heimild til húsleitar hjá Samherja, en húsleitirnar fóru fram 27. mars 2012. Í maí sama ár fór Samherji fram á það að húsleitin og haldlagning gagna yrðu dæmdar ólögmætar. Um leið krafðist Samherji þess að Seðlabankinn hætti rannsókninni. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði þessum kröfum og Hæstiréttur sömuleiðis.

„Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina í lok maí 2012.

mbl.is