Náðu síðasta víginu á sitt vald

Írak | 20. október 2017

Náðu síðasta víginu á sitt vald

Átök hafa brotist út milli Kúrda og íraskra hermanna í olíuborginni Kirkuk í Norður-Írak nokkrum dögum eftir að íraski herinn og vopnaðar sveitir síta hertóku hana. Yfir 100 þúsund Kúrdar hafa flúið borgina. BBC greinir frá. 

Náðu síðasta víginu á sitt vald

Írak | 20. október 2017

Íraski herinn í borginni Kirkuk.
Íraski herinn í borginni Kirkuk. AFP

Átök hafa brotist út milli Kúrda og íraskra hermanna í olíuborginni Kirkuk í Norður-Írak nokkrum dögum eftir að íraski herinn og vopnaðar sveitir síta hertóku hana. Yfir 100 þúsund Kúrdar hafa flúið borgina. BBC greinir frá. 

Átök hafa brotist út milli Kúrda og íraskra hermanna í olíuborginni Kirkuk í Norður-Írak nokkrum dögum eftir að íraski herinn og vopnaðar sveitir síta hertóku hana. Yfir 100 þúsund Kúrdar hafa flúið borgina. BBC greinir frá. 

Að sögn sjónarvotta hafa eldflaugum verið skotið á loft, fallbyssum verið beitt og vélbyssum í Alton Kupri. Það er eina svæðið þar sem Kúrdar eru enn við völd. Samkvæmt frétt AFP náðu sítar og íraski herinn svæðinu á sitt vald sem hefur nú alla borgina Kirkuk á sínu valdi.  

Í vikunni hertók íraski herinn landsvæðið sem Kúrdar hafa ráðið yfir frá árinu 2014.   

AFP
mbl.is