Boðin áframhaldandi störf

Rekstur hjúkrunarheimila | 30. mars 2021

Boðin áframhaldandi störf

Öllu starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum verða boðin áframhaldandi störf og á sömu kjörum þegar Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur við rekstri heimilisins 1. maí næstkomandi.

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Sigurður Bogi

Öllu starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum verða boðin áframhaldandi störf og á sömu kjörum þegar Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur við rekstri heimilisins 1. maí næstkomandi.

Öllu starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum verða boðin áframhaldandi störf og á sömu kjörum þegar Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur við rekstri heimilisins 1. maí næstkomandi.

Starfsfólkið mun jafnframt halda áunnum réttindum sínum. Þetta er megininntak samkomulags sem heilbrigðisráðuneytið og Vestmannaeyjabær hafa gert með sér vegna yfirfærslunnar. Samkomulagið í heild sinni verður kynnt fyrir starfsfólki og hlutaðeigandi stéttarfélögum strax eftir páska.

Vest­manna­eyj­ar voru í hópi fjög­urra sveit­ar­fé­laga sem sögðu upp samn­ing­um við ríkið um rekst­ur hjúkr­un­ar­heim­ila vegna ta­prekst­urs sem ríkið neitaði að greiða. 

mbl.is