Sunak sækist eftir formennsku

Boris Johnson segir af sér | 8. júlí 2022

Sunak sækist eftir formennsku

Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér sem næsti formaður Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Þetta tilkynnir Sunak í færslu á samfélagsmiðlinum Twitter.

Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands sækist nú eftir embætti forsætisráðherra.
Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands sækist nú eftir embætti forsætisráðherra. AFP

Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér sem næsti formaður Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Þetta tilkynnir Sunak í færslu á samfélagsmiðlinum Twitter.

Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér sem næsti formaður Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Þetta tilkynnir Sunak í færslu á samfélagsmiðlinum Twitter.

Eins og hefur verið greint frá var Sunak ásamt Sajid Javid, fyrrum heilbrigðisráðherra Bretlands, fyrstur til að segja af sér á þriðjudaginn. Í kjölfarið sögðu fjöldi ráðherra og aðrir starfsmenn af sér sem leiddi til þess að Boris Johnson sagði af sér í gær. 

Nú hefur Sunak tilkynnt að hann sækist eftir stöðu formanns og embætti forsætisráðherra og er hann fyrstur innan íhaldsflokksins til þess að tilkynna það. „Endurheimtum traust, endurbyggjum hagkerfið og sameinum þjóðina,“ sagði Sunak í færslu sinni.

mbl.is