Óvæntar loftárásir á Lvív

Frá borginni Lvív eftir árásirnar í dag.
Frá borginni Lvív eftir árásirnar í dag. AFP

Að minnsta kosti fimm manns eru særðir eftir óvæntar loftárásir rússneska hersins á borgina Lvív í vesturhluta Úkraínu í dag.

Árásir á borgina hafa verið sjaldgæfar enda er hún enn fjarri helstu vígstöðvum í landinu nú þegar rúmur mánuður er liðinn frá innrás Rússa.

Þykkur reykur stígur upp frá borginni.
Þykkur reykur stígur upp frá borginni. AFP

Kviknaði í iðnaðarhúsnæði

Borgarstjórinn Andrí Sadóví segir að kviknað hafi í iðnaðarhúsnæði sem hefur að geyma eldsneyti, eftir árásirnar. Innviðir borgarinnar hafi þá skemmst töluvert.

Hvatti hann íbúa til að halda sig innandyra þar til slökkt verður á loftvarnarflautum.

Þykkan reyk mátti sjá leggja af miðborg Lvív eftir að árásirnar höfðu gengið yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert