Selenskí mætti í fremstu víglínu

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, mætti í fremstu víglínu í austurhluta Úkraínu til að sýna hersveitum sínum stuðning.

Selenskí heimsótti Lyshychansk, sem er næsti bær við Severódónetsk þar sem Rússar hafa gert harðar árásir undanfarið. Einnig heimsótti forsetinn borgina Soledar sem er norðar í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert