Yfir þúsund flugferðum aflýst í dag vegna verkfalls

Frá verkfallsfundi í München í dag.
Frá verkfallsfundi í München í dag. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Yfir þúsund flugferðum hefur verið aflýst í Þýskalandi í dag vegna verkfalls starfsfólks þýska flugfélagsins Lufthansa. Þýski miðillinn DW greinir frá.

Á Frankfurt-flugvelli hefur yfir 600 flugferðum verið aflýst sökum verkfallsins. Í München hefur verkfallið einnig raskað flugi til Berlínar, Bremen, Kölnar, Düsseldorf, Hamborgar, Hannover og Stuttgart.

Fyrr í mánuðinum var greint frá því að Luft­hansa hefði af­lýst 2.000 flug­ferðum sem fram und­an áttu að vera í sum­ar vegna mann­eklu. Fyrir það hafði flug­fé­lagið af­lýst yfir 3.000 ferðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert