Mætir ekki í jarðarför Gorbatjovs

Rússlandsforseti verður ekki viðstaddur jarðarför Gorbatsjovs.
Rússlandsforseti verður ekki viðstaddur jarðarför Gorbatsjovs. AFP/Mikhail Klimentyev

Vladimír Pútín Rússlandsforseti mætir ekki í jarðarför Mikhaíl Gorbatsjovs, síðasta leiðtoga Sov­ét­ríkj­anna, sem lést á þriðjudag síðastliðinn 91 árs að aldri. Jarðarförin verður haldin á laugardag.

Pútín sendi fjölskyldu Gorbatsjovs samúðarskeyti á dögunum þar sem hann sagði að Gorbatsjov hefði breytt gangi sögunnar og leitt landið á flóknum og erfiðum tímum.

Gorbatsjov bæði hældi og gagnrýndi stefnumál Pútíns í stjórnartíð hans sem forseta Rússlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert