Báturinn ónýtur

Varðskipið Týr er komið á strandstað þar sem báturinn Einar Guðnason ÍS strandaði við Gölt á ut­an­verðum Súg­andafirði í gær­kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er báturinn ónýtur og marar í kafi.

Áhöfn varðskipsins og eigendur bátsins koma til með að hreinsa upp brak og annað rusl við strandstað í dag.

Mann­björg varð þegar bát­ur­inn strandaði við Gölt á ut­an­verðum Súg­andafirði í gær­kvöldi en neyðarkall barst frá bátn­um um klukk­an 22:00. Fjór­ir voru um borð.

Eins og áður hef­ur komið fram voru aðstæður erfiðar á vett­vangi sök­um brims. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar kom á vett­vang skömmu fyr­ir tólf á miðnætti og voru skip­verj­arn­ir all­ir komn­ir í þyrluna á miðnætti og flutt­ir til Ísa­fjarðar.

Bát­ur­inn Ein­ar Guðna­son strandaði við Gölt á ut­an­verðum Súg­andafirði í …
Bát­ur­inn Ein­ar Guðna­son strandaði við Gölt á ut­an­verðum Súg­andafirði í gær­kvöldi. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert