Björg ráðin sérfræðingur hjá Fiskistofu

Björg Þórðardóttir hefur verið ráðin sérfræðingur á veiðieftirlitssviði Fiskistofu og …
Björg Þórðardóttir hefur verið ráðin sérfræðingur á veiðieftirlitssviði Fiskistofu og verður starfsstöð hennar í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Fiskistofa

Björg Þórðardóttir hefur verið ráðin sérfræðingur á veiðieftirlitssviði Fiskistofu. Björg verður umsjónarmaður og ráðgjafi um málefni sem snerta brotamál sem upp komast við veiðieftirlit. „Markvisst og framsækið fiskveiðieftirlit er mikilvægur þáttur í því meginhlutverki Fiskistofu að gæta hagsmuna þjóðarinnar við sjálfbæra nýtingu auðlinda hafs og vatna,“ segir í tilkynningu frá Fiskistofu. 

Hlutverk Bjargar verður einnig að fylgja eftir skilum á afladagbókum og framþróun á nýju smáforriti fyrir rafræna aflaskráningu, að því er segir í tilkynningu. Þá mun hún annast greiningu og ýmis sérverkefni á sviði áhættumats. Starfsstöð Bjargar verður í Vestmannaeyjum.

Björg var áður yfirgjaldkeri hjá Íslandsbanka í Vestmannaeyjum 2017-2019 og hefur lokið MLM-gráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst (2018) og BSc í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri (2015).

Björg er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og er í sambúð með Birni Björnssyni sjómanni og eiga þau eitt barn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert