Vélarvana bátur kominn til Dalvíkur

Björgunarskip Landsbjargar. Myndin er úr safni.
Björgunarskip Landsbjargar. Myndin er úr safni. Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar sigldi í höfn á Dalvík um hálfsexleytið í dag með bát sem hafði orðið vélarvana vestur af Flatey á Skjálfanda.

Að sögn Jónasar Guðmundssonar hjá Landsbjörg gekk siglingin ljómandi vel en hún tók um fimm klukkustundir fram og til baka.

Vélarbilun varð í bátnum og var einn maður þar um borð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert