Röskva sigraði með yfirburðum

Háskóli Íslands.
Háskóli Íslands.

Röskva sigraði kosningar til Stúdentaráðs og háskólaráðs með 15 fulltrúum af 17 í Stúdentaráði.

Vaka fékk tvo fulltrúa kjörna í Stúdentaráð.

Þá sigraði Röskva -kosningar til háskólaráðs og fékk tvo fulltrúa kjörna af tveimur fulltrúum nemenda í háskólaráði.

Fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórn SHÍ að heildarkjörsókn hafi verið  21,70% í kosningum til stúdentaráðs þar sem alls voru 2.626 atkvæði greidd en 17,95% í kosningum til háskólaráðs þar sem 2.572 voru greidd. 

Niðurstöður kosninganna í heild sinni: 

Á  hugvísindasviði var sjálfkjörið þar sem einungis barst framboð frá Röskvu. 

Eftirfarandi hlutu kjör á Hugvísindasviði:

Rakel Anna Boulter, Röskva
Draumey Ósk Ómarsdóttir, Röskva
Magnús Orri Aðalsteinson, Röskva

Félagsvísindasvið - Kjörsókn var 22,79%

Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, Röskva
Viktor Ágústsson, Röskva
Dagur Kárason, Vaka
Diljá Ingólfsdóttir, Röskva
Elías Snær Torfason, Röskva


Menntavísindasvið - Kjörsókn var 15,13%

Auður Eir Sigurðardóttir, Röskva
Ísak Kárason, Röskva
Ísabella Rún Jósefsdóttir, Vaka


Verkfræði- og náttúruvísindasvið - Kjörsókn var 29,27%

Brynhildur R Þorbjarnardóttir, Röskva
Sigurþór Maggi Snorrason, Röskva
Dagmar Óladóttir, Röskva


Heilbrigðisvísindasvið - Kjörsókn var 25,52%

Andri Már Tómasson, Röskva
Sigríður Helga Ólafsdóttir
Dagný Þóra Óskarsdóttir, Röskva


Háskólaráð - Kjörsókn var 17,95%

Brynhildur K Ásgeirsdóttir, Röskva
Katrín Björk Kristjánsdóttir, Röskva

Varamenn í háskólaráði í 3. og 4. sæti:
Rebekka Karlsdóttir, Röskva
Ingvar Þóroddsson, Röskva

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert