Lægsta tilboð 91% af kostnaðaráætlun

Kostnaðaráætlun ÞG Verk í uppsteypu á tveggja hæða bílakjallara nýs …
Kostnaðaráætlun ÞG Verk í uppsteypu á tveggja hæða bílakjallara nýs Landspítala hljóðar upp á rúman 1,4 milljarð króna. Er það 91% af kostnaðaráætlun.

Kostnaðaráætlun ÞG Verk í uppsteypu á tveggja hæða bílakjallara nýs Landspítala hljóðar upp á rúman 1,4 milljarð króna. Er það 91% af kostnaðaráætlun. 

Í dag voru opnuð tilboð í uppsteypu tveggja hæða bílakjallara undir Sóleyjartorgi ásamt tengigöngum sunnan Landspítala. Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut.

Alls bárust tilboð frá tveimur verktökum en Eykt bauð rúmlega 2,1 milljarð í verkið sem er 140% af kostnaðaráætlun. 

Bílakjallarinn verður staðsettur milli meðferðarkjarna og fyrirhugaðrar byggingar dag-, göngu- og legudeildar Landspítalans austan við torgið, sem er sunnan megin við Gamla Landspítalann. Bílakjallarinn verður á tveimur hæðum og verða þar um 180 bílastæði fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða að koma í heimsóknir. Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 m2. Um var að ræða opið útboð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka