„Mjög bagalegt að missa námuna“

Hraunflæði úr gosinu sem hófst 16. mars. Mynd úr safni.
Hraunflæði úr gosinu sem hófst 16. mars. Mynd úr safni. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Hraun flæðir nú ofan í Melhólsnámu sem ligg­ur við Hagafell norður af Grinda­vík.

Náman hefur verið notuð við uppbyggingu varnargarðanna á svæðinu. Hraunflæði ofan í námuna ætti þó ekki að hafa áhrif á áætlanir um hækkun varnargarða.

Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, fylgist með stöðu mála á svæðinu og segir ekki margt annað til ráða en að bíða og sjá hvað verður. Alvarlegt sé að hraunið leiti mikið í átt að görðunum.

Hann hefur einnig fylgst með Melhólsnámu og segir að um sé að ræða gamla efnistökunámu sem átti að loka, en í ljósi þess að farið var í að byggja varnargarða á svæðinu var hún tekin í not að nýju. 

Hún hefur því komið að góðum notum síðustu mánuði. 

Hefur ekki áhrif á hækkun varnagarða

Ari Guðmunds­son, verk­fræðing­ur hjá Verkís, segir hraunflæði í námuna ekki hafa áhrif á þá hækkun á varnargörðunum sem verið er að ráðast í núna.

„Búið var að gera ráð fyrir því að ná í efni annars staðar frá, en þetta er mjög bagalegt að missa námuna því við höfum þurft á henni að halda í frekari framkvæmdir á svæðinu, vegagerðir og annað,“ segir Ari.

Þá bætir hann við að verið sé að sækja efni í hækkunina úr þeim rásum sem verktakar hafa myndað meðfram varnargörðunum. Vinna við hækkunina er ekki hafin. 

„Það er ennþá verið að spýta upp efni og vinna í gerð vinnuvega til þess að geta byrjað hækkunina.“

Sú vinna mun halda áfram fram á nótt. Slæmt veður hefur verið á svæðinu en það ætti ekki að hafa áhrif á vinnu á svæðinu, segir Ari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert