Tveir handteknir eftir umferðarslys

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Hari

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo einstaklinga eftir umferðarslys. Báðir reyndust þeir drukknir og ekki var hægt að staðfesta hvor þeirra var að aka bifreiðinni þegar slysið varð.

Rætt verður við þá þegar þeir vakna og runnið af þeim, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.

Gat ekki tjáð sig vegna ölvunar

Erlendur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangageymslu þar sem hann var víðáttuölvaður utandyra, að því er kemur fram í dagbókinni. Hann gat ekki tjáð sig sökum ástands. Ekki er vitað hvort einstaklingurinn sé ferðamaður eða búsettur á landinu.

Ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Einnig kom í ljós á síðari stigum að ökumaðurinn hafði gefið upp rangt nafn. Þegar réttu nafni var flett upp í kerfum lögreglu kom í ljós að hann var einnig sviptur ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert