Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
25. mars 2024
Ragnar Gunnarsson, eða Raggi Sót er gestur Dagmála á fyrsta vinnudegi páskavikunnar. Hann ræðir öll stórmálin sem eru uppi í íslensku samfélagi þessa dagana. Forsetakosningar, framganga Seðlabankans í tengslum við kjarasamninga. Hælisleitendamálin og stöðu ríkisstjórnarinnar. Raggi verður seint sakaður um skoðanaleysi, en hann var flokksbundinn Miðflokknum þar til flokkurinn tók upp fléttulista í prófkjöri. Þá var honum nóg boðið og hann sagði sig úr flokknum. Það gekk vel fyrir sig, ólíkt því þegar hann í áratug reyndi að komast af félagatali Alþýðubandalagsins.
Nú stefnir allt í að Akureyri, heimabær og æskuslóðir Ragga verði borg. Gamli popparinn ræðir þá stöðu og einnig sitt fyrra líf þegar hann gerði garðinn frægan með Skriðjöklum.
Hann hefur staðið í stórræðum ásamt Guðbjörgu sambúðarkonu sinni undanfarin misseri. Tíðar ferðir til Póllands í tannviðgerðir þar sem kostnaður er einungis þriðjungur af því sem þau hefðu þurft að greiða hér heima.
Raggi Sót startar þessari viku með hvelli.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska