mbl | sjónvarp

Frumkvöðlum fylgt úr hlaði

VIÐSKIPTI  | 29. september | 11:42 
Hvað eru sprotafyrirtæki og hverjar eru helstu hindranir á vegi framkvæmdaglaðra einstaklinga sem vilja koma hugmyndum sínum í framleiðslu. Í dag hefur göngu sína þáttaröðin Sprotar á sjónvarpi mbl.is þar sem fylgt er eftir tveimur teymum af ungum frumkvöðlum.

Hvað eru sprotafyrirtæki og hverjar eru helstu hindranir á vegi framkvæmdaglaðra einstaklinga sem vilja koma hugmyndum sínum í framleiðslu. Ferlið sem þessi nýju fyrirtæki fara í gegnum er mun meira en bara hugmyndin sjálf. Það þarf að þróa vöruna, sækja um einkaleyfi, kynna hugmyndina og fá fjármögnun auk þess að markaðssetja og selja vöruna eða þjónustuna. 

Í dag hefur göngu sína þáttaröðin Sprotar á sjónvarpi mbl.is þar sem fylgt er eftir tveimur teymum af ungum frumkvöðlum sem vinna með snjallar hugmyndir og fylgst með helstu áskorunum og framgöngu þeirra.

Sprotar
Í þáttunum Sprotar er fylgst með sprotafyrirtækjum og verkefnum þeirra.
Loading