mbl | sjónvarp

Er samkynhneigð feimnismál?

FÓLKIÐ  | 6. maí | 10:00 
Umfjöllunarefni næstu myndar í stuttmyndaröð Mbl Sjónvarps er forvitnilegt en þar kynnast tveir ungir menn á einkamálasíðu á netinu. Höfundur myndarinnar, sem heitir Áttu vatn?, er Haraldur Sigurjónsson

Umfjöllunarefni næstu myndar í stuttmyndaröð Mbl Sjónvarps er forvitnilegt en þar kynnast tveir ungir menn á einkamálasíðu á netinu. Höfundur myndarinnar, sem heitir Áttu vatn?, er Haraldur Sigurjónsson: „Mig langaði að gera eitthvað öðruvísi, mannlegt og rómantískt sem kæmi á óvart. Ég fór og setti upp aðstæður og söguþráð sem leikararnir unnu eftir. Síðan spinna leikararnir og búa til sína karaktera sem síðan kynnast með óvæntum afleiðingum,“ segir Haraldur.

Með aðalhlutverk fara þeir Ásgrímur Guðnason, Haraldur Ari Karlsson og 
Arne K. Arneson, allir eru þeir útskrif
aðir leikarar frá Kvikmyndaskóla Íslands.

Stuttmyndahornið
Íslendingar eiga frábæra kvikmyndagerðarmenn og leikstjóra. MBL Sjónvarp sýnir nú stuttmyndir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands en stuttmyndirnar eru hluti af lokaverkefni nemenda skólans. Margir af ástsælustu leikurum þjóðarinnar bregður fyrir í myndunum.
Loading