mbl | sjónvarp

Liverpool kemur mér aldrei á óvart

ÍÞRÓTTIR  | 10. mars | 20:34 
Markaskorari Manchester City John Stones var til viðtals í Vellinum á Símanum Sport eftir jafntefli City og Liverpool, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Anfield í Liverpool í dag.

Markaskorari Manchester City John Stones var til viðtals í Vellinum á Símanum Sport eftir jafntefli City og Liverpool, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Anfield í Liverpool í dag. 

Stones kom City yfir í fyrri hálfleik en Alexis Mac Allister jafnaði metin í þeim síðari og þar við sat. 

Nokkur skakkaföll voru í liði Liverpool en þegar Gylfi Einarsson spurði John Stones hvort eitthvað hafi komið honum á óvart sagði Englendingurinn:

„Liverpool kemur mér aldrei á óvart. Við vitum að Liverpool er með góða liðsheild en einnig nokkur meiðsli.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport. 

Veiði
Vandaðir fræðsluþættir um fluguköst í umsjón Barkar Smára Kristinssonar. Þættirnir eru gerðir með því hugarfari að gera fluguveiðimönnum á Íslandi kleift að skilja betur út á hvað fluguköst ganga.
Loading