Franski framherjinn Neal Maupay reyndist hetja Brighton er liðið vann 1:0-útisigur á Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Maupay skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik eftir afar fallegt spil hjá sóknarmönnum Brighton og þurfti Maupay aðeins að koma boltanum yfir línuna með opið mark fyrir framan sig.
Með sigrinum fer Brighton upp í 16. sætið og er nú með 17 stig, fimm stigum frá fallsæti. Leeds er í 12. sætinu með 23.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.