Marcus Rashford hefur verið frábær í liði Manchester United í ensku úrvalsdeildinni undanfarið og hann var sjóðheitur í sigri liðsins gegn Crystal Palace á Old Trafford í dag.
Fyrirgjöf Englendingsins fór í hönd varnarmanns gestanna innan vítateigs og vítaspyrna var dæmd sem Bruno Fernandes skoraði úr. Rashford var svo sjálfur á ferðinni í seinni hálfleik og skoraði sitt sjötta mark í sjö síðustu leikjum.
Jeffrey Schlupp leikmaður Crystal Palace minnkaði muninn fyrir gestina þegar um stundarfjórðungur lifði leiks en lengra komust þeir ekki.
Mörkin í leiknum ásamt helstu færunum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.