mbl | sjónvarp

Fölsuðu debetkort og notuðu

INNLENT  | 18. janúar | 10:37 
Rannsóknarlögreglumaður trúði því vart að tveir menn í annarlegu ástandi gætu notað stolið greiðslukort 80 sinnum á fjórum dögum án þess að afgreiðslufólk gerði athugasemd. Eftir að hafa legið yfir upptökum úr öryggismyndavélum komst hann að því að mennirnir notuðu alls ekki stolna kortið.

Rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins trúði því vart að tveir menn í annarlegu ástandi gætu notað stolið greiðslukort 80 sinnum á fjórum dögum án þess að afgreiðslufólk gerði athugasemd. Eftir að hafa legið yfir upptökum úr öryggismyndavélum komst hann að því að mennirnir notuðu alls ekki stolna kortið.

Fjallað er um óvenjulegt kortasvindl í þættinum 112 hér á MBL Sjónvarpi. Tveir menn komust yfir greiðslukort með því að brjóta upp póstkassa við hús í vesturbænum. Á fjórum dögum skuldfærðu þeir á kortið 1,2 milljónir króna. Upp um þá komst þegar þeir voru stoppaðir á stolnum bíl.

112
Æsispennandi þættir um störf fólksins sem leggur sig í hættu við að bjarga öðrum úr háska. Eftirfarir, björgunarafrek, sakamál og margt fleira.
Loading